Boðað er til aðalfundar FAST – félags akademískra starfsmanna við Háskólann í Reykjavík, föstudaginn 29. maí kl. 11:30 í stofu V105.
Dagskrá
Á dagskrá fundarins verða hefðbundin aðalfundarstörf í samræmi við lög félagsins. Einnig verða til umræðu:
- Breytingar á lögum félagsins
- Staða mála í myndun kjarasamnings
Trúnaðarstörf
Félagsfólk er hvatt til að bjóða sig fram til trúnaðarstarfa innan félagsins.
Boðið verður upp á léttan hádegisverð.