Sjóðir BHM
Félagsfólk FAST á aðild að sjóðum BHM og getur sótt um styrki úr þeim. Umsóknir og upplýsingar um réttindastöðu eru á Mínum síðum BHM.
Sjúkrasjóður
Styrkir vegna heilsu og forvarna, líkamsræktar, gleraugna og heyrnartækja, auk fæðingarstyrks, sjúkradagpeninga og útfararstyrks.
Nánar á vef BHM →Orlofssjóður
Orlofshús og íbúðir til leigu um land allt, ásamt gjafabréfum, gjafakortum og ýmsum afsláttum til félagsfólks.
Nánar á vef BHM →Starfsmenntunarsjóður
Styrkir til endur- og símenntunar, svo sem vegna námskeiða, ráðstefna og námsferða sem tengjast starfi félagsfólks.
Nánar á vef BHM →Kjarasamningar
FAST hefur ekki enn gildandi kjarasamning við HR. Stjórn félagsins vinnur nú að því verkefni að tryggja félagsmönnum kjarasamning. Sjá nánar í frétt.
Kjaramál akademískra starfsmanna við HR munu falla undir samninginn sem unnið er að í samstarfi við BHM. Kjarasamningar ná m.a. til launa, vinnutíma, orlofs, veikindaréttar og annarra starfskjara.
Laun og launaviðmið
Laun akademískra starfsmanna miðast við launatöflur kjarasamninga. Launaviðmið taka mið af starfi, menntun, starfsaldri og öðrum þáttum samkvæmt samningum.
Orlof
Félagsmenn eiga rétt á orlofi samkvæmt orlofslögum. Nánari upplýsingar um orlofsréttindi og orlofshúsaaðgang í gegnum BHM er hægt að nálgast á orlofsvef BHM.
Veikindaréttur
Réttur til launa í veikindum er tryggður samkvæmt lögum. Lengd veikindaréttar fer eftir starfsaldri og ákvæðum gildandi ráðningarsamnings.
Lífeyrissjóður
Skyldubundið iðgjald er greitt í lífeyrissjóð samkvæmt lögum. Félagsmenn eiga einnig rétt á mótframlagi vinnuveitanda í séreignarsjóð.
Starfsþróun
Félagsmenn eiga rétt á leyfi og/eða styrk til starfsþróunar, rannsókna og endurmenntunar samkvæmt reglum háskólans.
Fæðingarorlof
Réttur til fæðingarorlofs er samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Kjarasamningar geta veitt aukinn rétt umfram lög.