Stjórn FAST hefur sent Háskólanum í Reykjavík (HR) formlegt erindi þar sem óskað er eftir fundi með fulltrúum háskólans til að hefja viðræður um gerð kjarasamnings fyrir félagsfólk FAST.
Aðdragandi
FAST hefur ekki enn gildandi kjarasamning við HR. Stjórn félagsins hefur undanfarið unnið að undirbúningi samningsgerðar í samstarfi við BHM, og er erindið næsta skrefið í því ferli. Sjá nánar í fréttinni Kjarasamningar — staðan.
Næstu skref
Félagsfólki verður haldið upplýstu um framgang mála hér á vefnum og í tölvupósti þegar svar berst frá háskólanum og viðræður hefjast.
Félagsfólk getur beint fyrirspurnum um kjaramál og stöðu viðræðna til stjórnar FAST.